Ađalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

Yay

23. desember 2006 klukkan 05:08
Jæja, þá ákvað ég loksins bara að kveðja gömlu unknowns síðuna eftir margra ára vináttu :)
Bara svona til að checka hvort marr er duglegri hérna? Who knows..

Nú er marr loksins búinn með skólann :D Skrýtin tilfinning verð ég að segja.. örugglega svipað og að kafna, þú ert búinn að vera anda alla ævi en síðan kemur einhver og kyrkir þig.. tekur andadráttinn frá þér... Jebb alveg nákvæmlega einsTala af sér

Svo líður bara senn að jólum ? En það er ekki það sem ég er að telja niður í.. neibb! 6 dagar þangað til hin langbeðna Tenerife ferð hefst! Og ég veit bara ekki um betri leið en það að enda skólagöngu sína og hefja nýjan kafla í lífinu ( Ég er stúdent.. þeir eru alltaf gegt djúpir )

En já... ég vil bara þakka ykkur sem mættu í veisluna mín! Fannar, Kiddi, Hjörri, Ævar, Grétar, Gassi, Andrea, Tinna, Erla og Begga! Og gjafirnar ykkar voru alveg frábærar! Hlakka til að geta óskað ykkur til hamingju með útskriftina líka! Líka þér Aron minn  Þögull sem gröfin

En er það The Souldance eða? Annan í jólum? Ég er allavega heavy geim í það.. eitt svona lokadjamm með vinunum áður en marr kveður ;)

Og já.. þið megið rífast um tölvuna mína ef ég dey í ferðinni... því ég Sammi, Sveinn og Gummi ætlum að skella okkur í eitt stykki fallhlífarstökk! Og reyndar örugglega helling af öðrum ódæðisverkum!

Seeya! Og já.. helling af Ítalíumyndum eru komnar í myndaalbúmið ;)
Dammi
Samuel skrifar ...
 
Ja dammi þú ert ágætur...segi það ekki oftar
24. desember 2006 klukkan 00:47
Marína skrifar ...
hey! varst það ekki þú sem sagðir við mig: "huh! bloggar.is SÖÖKKKKKAR!!!" ????

Svikari!

Ég fylgist með þér lúði... glædelig jul lille mand:)
24. desember 2006 klukkan 05:52
Garđar Reynis skrifar ...
Ég er til í soul-dance. Einhver fleirri?

Dammi, komdu svo í keppni um hvor getur sett inn reiðustu myndina hérna efst á síðuna.
24. desember 2006 klukkan 08:10

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur